UM PROXIMA
Nálæg þjónusta. Stórar hugmyndir.
Vefhönnun, hýsing og umsjón með persónulegri nálgun. Skýr samskipti frá fyrsta samtali og áfram.
SIGURÐUR HÓLM GUNNARSSON
Þú veist við hvern þú talar.
Proxima er vefþjónusta Sigurðar Hólm Gunnarssonar. Markmiðið er einfalt: að gera þér auðveldara að vera með vandaðan vef og fá aðstoð þegar þú þarft á henni að halda.
Hönnun, smíði og rekstur vefs þurfa að vinna saman. Hjá Proxima er horft á verkefnið í heild, frá fyrstu hugmynd að vef sem heldur áfram að nýtast fyrirtækinu.
Góður vefur byrjar á góðu samstarfi.
Þú þekkir fyrirtækið þitt. Við hjálpum þér að koma þeirri þekkingu til skila á vefnum.
Bein samskipti.
Þú hefur samband við þann sem þekkir vefinn og verkefnið. Við tölum skýrt um valkosti, umfang og næstu skref.
Lausn sem hæfir verkefninu.
Þarfir fyrirtækisins ráða för. Tæknin er valin út frá efni, virkni og því hvernig vefnum verður sinnt.
Samstarf eftir birtingu.
Vefurinn þarf að geta þróast. Hýsing, viðhald og aðstoð við breytingar geta fylgt verkefninu áfram.
Kynnumst verkefninu þínu.
Við byrjum þar sem þú ert staddur, hvort sem hugmyndin er ný eða núverandi vefur þarf næsta skref.